Starfsáætlun 8. flokks

8. flokkur

Áttundi flokkur í knattspyrnu fellur undir starfsemi samþættinga verkefni skóla og frístundastarf og má lesa nánar um það HÉR

  • Sjá um skipulag og framkvæmd æfinga og leikja og sér um skráningar á mót í samstarfi við foreldrafulltrúa.

  • Halda í samstarfi við foreldrafulltrúar einn foreldrafund í upphafi haustannar þar sem farið er yfir helstu atriði varðandi þjálfun flokksins og þátttaka í mótum rædd.

Foreldrafulltrúar

  • Eiga í nánu samstarfi við þjálfara um skráningar á mót.

  • Sjá um skipulagningu ferða, greiðslu mótsgjalda í samstarfi við framkvæmdastjóra Völsungs.

  • Hafa skoðunaraðgang að bankareikningi flokksins og geta þannig fylgst með hreyfingum á honum. Framkvæmdastjóri er einn með prókúru og sér um millifærslur að beiðni foreldrafulltrúa.

  • Sjá um skipulagningu og framkvæmd Völsungsmóts í samstarfi við mótsnefnd. Foreldrafulltrúar skipta verkum með foreldrum iðkenda í 6., 7. og 8. flokki vegna mótsins.

  • Eru að lágmarki tveir, einn úr hvorum árgangi.

Mót
Flokkurinn tekur að öllu jöfnu þátt í eftirfarandi mótum:

  • Stefnumóti KA í nóvember og í apríl

  • Strandamóti í júlí

  • Völsungsmót á Húsavík í lok ágúst

Endanlega ákvörðun um þátttöku í mótum er tekin á foreldrafundi. Þjálfari fylgir flokknum á þessi mót eða á fjögur dagsmót að hámarki. Foreldrafulltrúar sjá til þess að koma þjálfara á mótsstað.

Fjáröflun
Ekki er gert ráð fyrir sérstakri fjáröflun fyrir 8. flokk.