- Íþróttagreinar
- Aðalstjórn
- Hafa samband
- Samþætting
- Getraunir
- Skráning
- Sagan
7. flokkur kk
Sjöundi flokkur í knattspyrnu fellur undir starfsemi samþættinga verkefni skóla og frístundastarf og má lesa nánar um það HÉR
Þjálfari
Sér um skipulag og framkvæmd æfinga og leikja og sér um skráningar á mót í samstarfi við foreldrafulltrúa.
Heldur í samstarfi við foreldrafulltrúa tvo foreldrafundi. Fyrri fundinn í upphafi haustannar þar sem farið er yfir helstu atriði varðandi þjálfun flokksins og þátttaka í mótum rædd. Seinni fundurinn er haldinn í febrúar þar sem vor og sumarstarf er rætt og þátttaka í vor og sumarmótum ákveðin.
Foreldrafulltrúar
Eiga í nánu samstarfi við þjálfara um foreldrafundi og skráningar á mót.
Sjá um skipulagningu ferða, greiðslu mótsgjalda í samstarfi við framkvæmdastjóra Völsungs.
Hafa skoðunaraðgang að bankareikningi flokksins og geta þannig fylgst með hreyfingum á honum. Framkvæmdastjóri er einn með prókúru og sér um millifærslur að beiðni foreldrafulltrúa.
Sjá um skipulagningu og framkvæmd Völsungsmóts í samstarfi við mótsnefnd. Foreldrafulltrúar skipta verkum með foreldrum iðkenda í 6., 7. og 8. flokki vegna mótsins.
Eru að lágmarki tveir, einn úr hvorum árgangi.
Foreldrafulltrúar skipuleggja hópefli í samstarfi við þjálfara.
Mót
Flokkurinn tekur að öllu jöfnu þátt í eftirfarandi mótum:
Stefnumóti KA í nóvember og í apríl
Minningarmót Óðins Skúla í maí
Strandamóti í júlí
Völsungsmót á Húsavík í lok ágúst
Endanlega ákvörðun um þátttöku í mótum er tekin á foreldrafundum. Þjálfari fylgir flokknum á þessi mót eða á samtals fimm dagsmót að hámarki.
Fjáröflun
Ekki er gert ráð fyrir sérstakri fjáröflun fyrir 7. flokk.