Starfsáætlun 6. flokks kvenna

6. flokkur kvenna

Þjálfari

  • Sér um skipulag og framkvæmd æfinga og leikja og sér um skráningar á mót í samstarfi við foreldrafulltrúa.

  • Heldur í samstarfi við foreldrafulltrúa tvo foreldrafundi. Fyrri fundinn í upphafi haustannar þar sem farið er yfir helstu atriði varðandi þjálfun flokksins og þátttaka í mótum rædd. Seinni fundurinn er haldinn í febrúar þar sem vor og sumarstarf er rætt og þátttaka í vor og sumarmótum ákveðin.

Foreldrafulltrúar

  • Eiga í nánu samstarfi við þjálfara um foreldrafundi og skráningar á mót.

  • Sjá um skipulagningu ferða, greiðslu mótsgjalda í samstarfi við framkvæmdastjóra Völsungs.

  • Hafa skoðunaraðgang að bankareikningi flokksins og geta þannig fylgst með hreyfingum á honum. Framkvæmdastjóri er einn með prókúru og sér um millifærslur að beiðni foreldrafulltrúa.

  • Sjá um skipulagningu og framkvæmd Völsungsmóts í samstarfi við mótsnefnd. Foreldrafulltrúar skipta verkum með foreldrum iðkenda í 6., 7. og 8. flokki vegna mótsins.

  • Eru að lágmarki tveir, einn úr hvorum árgangi.

  • Skipuleggja hópefli í samstarfi við þjálfara.

Mót
Flokkurinn tekur að öllu jöfnu þátt í eftirfarandi mótum:

  • Stefnumóti KA í nóvember og í apríl

  • Goðamóti Þórs í febrúar/mars (gistimót)

  • Minningarmót Óðins Skúla í maí

  • ÓB mót á Sauðárkróki í júní eða Símamót í Kópavogi í júlí (gistimót)

  • Völsungsmót á Húsavík í lok ágúst

Endanlega ákvörðun um þátttöku í mótum er tekin á foreldrafundum. Þjálfari fylgir flokknum á þessi mót eða á samtals tvö gistimót og fimm dagsmót að hámarki. Foreldrafulltrúar sjá til þess að koma þjálfara á mótsstað í samræmi við verklagsreglur um ferðakostnað og gistingu þjálfara á mótum.

Fjáröflun
Flokkurinn á rétt á sölu á Völsungshúfum og hárböndum. Aðrar fjáraflanir þurfa að eiga sér stað í samráði við framkvæmdastjóra Völsungs.