- Íþróttagreinar
- Aðalstjórn
- Hafa samband
- Samþætting
- Getraunir
- Skráning
- Sagan
3. flokkur karla
Þjálfari
Sér um skipulag og framkvæmd æfinga og leikja og sér um skráningar á mót í samstarfi við foreldrafulltrúa.
Heldur í samstarfi við foreldrafulltrúa tvo foreldrafundi. Fyrri fundinn í upphafi haustannar þar sem farið er yfir helstu atriði varðandi þjálfun flokksins og þátttaka í mótum rædd. Seinni fundurinn er haldinn í febrúar þar sem vor og sumarstarf er rætt og þátttaka í vor og sumarmótum ákveðin.
Foreldrafulltrúar
Eiga í nánu samstarfi við þjálfara um foreldrafundi og skráningar á mót.
Sjá um skipulagningu ferða, greiðslu mótsgjalda í samstarfi við framkvæmdastjóra Völsungs.
Hafa skoðunaraðgang að bankareikningi flokksins og geta þannig fylgst með hreyfingum á honum. Framkvæmdastjóri er einn með prókúru og sér um millifærslur að beiðni foreldrafulltrúa.
Eru að lágmarki tveir, einn úr hvorum árgangi.
Skipuleggja hópefli í samstarfi við þjálfara.
Mót
Flokkurinn tekur þátt í Íslandsmóti þar sem leikir mótsins dreifast yfir sumarið, tveir leikir við hvert lið, heima og heiman. Auk þess tekur flokkurinn að öllu jöfnu þátt í Stefnumóti KA í febrúar/mars (gistimót) og einu knattspyrnumóti erlendis
Endanlega ákvörðun um þátttöku í mótum er tekin á foreldrafundum. Þjálfari fylgir flokknum á þessi mót eða á leiki í Íslandsmóti, eitt gistimót og á eitt knattspyrnumót erlendis. Foreldrafulltrúar sjá til þess að koma þjálfara á mótsstað í samræmi við verklagsreglur um ferðakostnað og gistingu þjálfara á mótum.
Fjáröflun
Flokkurinn á rétt á ÍS sölu. Aðrar fjáraflanir þurfa að eiga sér stað í samráði við framkvæmdastjóra Völsungs.
Iðkendur taka þátt í fjáröflun vegna þátttöku í knattspyrnumóti erlendis. Sérstök fjáröflunarnefnd er skipuð af foreldrum sem heldur utan um fjáröflunina. Til að vera gjaldgengir til þátttöku þurfa iðkendur að skrifa undir vímuvarnarsamning.