Orkusalan

Fréttir

Húsvíkingar höfđu betur í bragđdaufum leik

Donni skorađi á 34. mín
Donni skorađi á 34. mín

KA2 0-2 Völsungur

0-1 Halldór Geir Heiðarsson (´34)
0-2 Arnþór Hermannsson (´60)


KA2 og Völsungur mættust í dag í Hleðslumótinu og hafði Völsungur betur í
tilþrifalitlum leik. Liðin verða þó ekki sökuð um að hafa ekki lagt sig
fram því góð barátta var í báðum liðum. Halldór Geir Heiðarsson kom
Völsungi yfir á 34. mínútu eftir sendingu inn fyrir vörn KA2 og afgreiddi
boltann laglega í netið. Hálfleikstölur voru 0-1, Völsungi í vil.

í upphafi seinni hálfleiks áttu bæði lið nokkrar fínar sóknir en
markverðir liðanna vörðu vel. Það var síðan á 60. mínútu sem Völsungar
kláruðu leikinn á þegar Arnþór Hermannsson skoraði seinna mark leiksins og
Völsungar komnir í 0-2. KA2 sótti nokkuð undir lok leiksinns og fengu
meðal annars aukaspyrnu við vítateigslínuna en náðu ekki að nýta hana og
lauk leiknum með 0-2 sigri Völsungs.

Þessi úrslit dugðu Völsungi þó ekki til að komast uppfyrir Dalvík/Reyni í
2. sæti riðilsins en til þess hefði Völsungur þurft að vinna leikinn með 5
marka mun. Völsungur endar í 3. sæti riðilsins með 4 stig en KA2 á
botningum án stiga.

Nú er því orðið ljóst hvaða lið mætast í leikjunum um sæti á mótinu.
Aðallið Þórs og KA munu leika til úrslita en Dalvík/Reynir og Magni munu
spila um 3. sætið. Þessir leikir fara fram um næstu helgi. Völsungur mætir
KF í leiknum um 5. sætið og KA2 leikur gegn Þór2 um 7. sæti mótsins.
Leikirnir um 5.-8. sæti fara fram um þarnæstu helgi.

Maður leiksins: Fannar Hafsteinsson (KA2)

Umfjöllun annaðist Bjarni Hrannar Reykjalín


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning